Morgunverkin

Allir morgnar byrja eins hjá okkur félögum. Húsbóndinn rumskar ýtir mér af sér og röflar um hversu plássfrekur ég er . Ég  að ég takki mikið pláss sumir ætu að líta í eigin barm. Húsfreyjan talar alltaf um hversu feitir við erum og er búinn að minka matinn við okkur báða. Ekki mikil fögnuður hjá okkur, við teljum okkur vera mjúka að innan sem utan. það er bara gott að borða. Allavega þegar húsbóndinn er búinn að staulast á fætur með öllum þeim óhljóðum sem því fylgja,  losað er um morgun sprenginn húsbóndinn við postulíns skálina og ég í kassann sem er inn í skáp þar rétt hjá. Þetta er svo falleg stund og mikil nautn hjá okkur félögunum. þegar búið er að sturta niður og klóra með fram loppum í sandinn smá stund er komið að því að hoppa upp í vaskinn og fá sér að drekka ferst vatn skola muninn ferst vatn úr krananum. þetta getur tekið fimm mínútur ekki við mikinn fögnuð húsbóndans það er að segja ef ég er á undan upp í vaskinn. Ég held að hann sé svolítið morgun fúll hann segir allavega ekki mikið fyrstu mínútur á morgnanna. það er annað með húsfreyjuna og krakka krympuna þau mala og tala út í eitt hvernig er þetta hægt þegar maður er rétt að opna augun á morgnana.  

þetta er búinn að vera skemmtilegur morgun það er best að fara að leggja sig og dorma til 16:15 þá kemur frúin og krakinn heim og þá er enginn friður þannig að það er eins gott að nýtta daginn vel í lúrinn 

ummm úf já þarna puff %$#”()     maga klór frá húsbóndanum þetta á eftir að vera góður dagur 

Grettir 


Kossar og Knús

Dagurinn byrjaði kl 7:00 á kossi og knúsi en ekki hvað frá húsfreyjunni. ótrúlegt þetta að rífa mann upp þar sem ég ligg og sef ofan á bumbunni hjá húsbónda mínum þar er heitt og og ég lyftist upp og niður í taktföstum hraða þar sem húsbóndinn gefur frá sér hljóð eins og enginn væri morgundagurinn æ þið vitið "puf hrotta puf hrotta puf" þetta er svo ótrúlega svæfandi og svo dansar bumban upp og niður í takt við þessi óhljóð það er nú reyndar þannig að húsfreyjan er ekkert voða ánægð með þetta tiltæka hljóð frá húsbónda mínum alla vega mér finnst þetta notalegt. Klukkan var ekki fimm mínútur yfir sjö þegar krakkinn ríkur inn í rúmið hjá mér og húsbónda mínum og fer að toga mig og teygja í framan úffff puff hvað er með þetta hvernig þætti þeim ef ég mundi þæfa á andlitinu á þeim daginn inn  og út sleikti þau í framan það mundi heyrast í einhverjum þá takk fyrir og góðan daginn. Hvernig er þetta mér finnst bara ekki gott að láta knúsa mig og kyssa halda á mér eða vera í mannlegum samskiptum við fólk ég er köttur og fer mínar eigin leiðir takk fyrir. Reyndar hefur húsbóndinn mikinn skilning á því hvað mér finnst gott og þess vegna kýs ég að leifa honum að sofa hjá mér á nótinni við hlið húsfreyjunnar í stóra rúminu mínu. En var ég búinn að segja ykkur mér finnst gott að sofa ofaná sænginni en ekki undir henni 

hættið svo að knúsa mig og kjassa toga mig til og teygja þetta er bara ekkert gott

ps. Rækjur og humar mmmmmmmm

Grettir  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband